Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 23. júlí 2009

Sendur aðra hvora viku
til 944 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Nýtt vín | Uppskrift dagsins | Hvað er að frétta af Frú Laugu? | Vínkeðjan

NÝTT VÍN
Vinho Verde — Létt sumarhvítvín frá Portúgal

Sumarið er tíminn.

Þá dregur maður oftar en ekki fram léttari vín, kæld hvítvín, kassavín eða bjór.

Eitthvað svalandi og gott — ekki síst þegar blíðan leikur við okkur eins og undanfarnar vikur (þetta á að minnsta kosti við í Reykjavík og nágrenni þar sem þetta er skrifað).

Terra Antiga Vinho Verde er eina portúgalska hvítvínið í Vínbúðunum. Það eitt og sér er næg ástæða fyrir okkar til að brölta með það hingað á markað. Hin ástæðan er gott verð en Vinho Verde hvítvín eru þekkt fyrir að vera góðu kaup og landinn þar suður frá skolar því mest öllu niður sjálfur.

Svo er það frísklegt svo um munar enda örlar á loftbólum skv. hefð Vinho Verde hvítvína þótt það sé langt frá því að teljast freyðivín.

Áfengismagnið er líka lágt, 11%.

Nafnið, Vinho Verde, þýðir "græn vín". Þótt fölgrænan blæ megi sjá á lit Terra Antiga þá er nafngift þessarar víngerðarhefðar frekar rakin til ferskleika vínanna en litar. Vinho Verde hvítvín koma eingöngu frá N-Portúgal og nyrst á því svæði í þorpinu Melgaço, rétt við landamæri Spánar, eru vínekrurnar sem gefa okkur þennan fulltrúa.

Terra Antiga Vinho Verde kostar 1.789 kr. og fæst í öllum Vínbúðum höfuðborgarsvæðisins og í Reykjanesbæ.

Ferskt, ferskt, ferskt!

Hvernig er Vinho Verde búið til? — Sýnikennsla skref fyrir skref»

UPPSKRIFT DAGSINS
Salat með heitum geitaosti í boði Vínóteks

Uppskrift dagsins er að þessu sinni fengin með góðfúslegu leyfi af glæsilegum, nýjum vef Vínótek.

Vefurinn fjallar um vín og meðlæti, veitingastaði og ýmislegt fleira auk þess að gefa góðar uppskriftir.

Steingrímur Sigurgeirsson er maðurinn á bak við vefinn en hann hefur til margra ára séð um m.a. vín- og matarumfjöllun Morgunblaðsins.

Nýjasta uppskrift vikunnar á Vínótekinu hans Steingríms er Salat með heitum geitaosti. Einfaldur réttur sem væri prýðilegur forréttur með t.d. Vinho Verde hvítvíninu okkar hér ofar.

Uppskriftin af Salati með heitum geitaosti »

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA AF FRÚ LAUGU?
Von Trapp fjölskyldan í Fréttablaðinu

Fjallað var um Bændamarkað Frú Laugu í Fréttablaðinu á dögunum og fjölskyldan eins og hún lagði sig (fyrir utan köttinn Lucie) spókaði sig fyrir framan innganginn áður en hann var málaður.

Annars er allt gott að frétta af Frú Laugu. Fyrsta Fréttabréf Frú Laugu er í bígerð og "vildarmenn" hrúgast inn á Facebook síðuna hennar.

Við erum með umsókn í vinnslu hjá Reykjavíkurborg og vonumst eftir starfsleyfi í næstu viku svo við getum opnað 5. ágúst.

Það verður staðfest nánast síðar.

Viðal í Fréttablaðinu má lesa hér á Facebook Frú Laugu »

VÍNKEÐJAN
Hallur Magnússon "að nánast bresta í ítölsku!"

Hallur Magnússon tók sér frí frá pólítískum skrifum og bloggaði um Lambrusco frá Lini í nýjasta Vínkeðju-hlekkinum.

Lestu bloggið hans Halls um Lambrusco frá Lini

Hallur mælir með víninu í sumarsólinni en líka til að þess að færa ”sól í sinni” á köldum vetrarkvöldum.

Hann viðurkennir að Lambrusco frá Lini sé fyrsta vínið sem honum dettur í hug að geti gengið með heitum blóðmör — og það tökum við undir því rannsóknarsvið fyrirtækisins hefur reynt það einu sinni með mjög góðum árangri.

Vínkeðjan frá upphafi hér »

 

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Víndómar vikunnar

Gestgjafinn tekur vel á móti Little James tvíburavínunum frá Saint Cosme í S-Frakklandi.

Little James rautt og Little James hvítt fá bæði 4 glös af fimm mögulegum auk þess sem að hvítvínið er valið Vín mánaðarins.

Við mælum með þessum vínum sérstaklega fyrir þá sem langar að prófa eitthvað ekta og gott frá Frakklandi án þess að sprengja budduna en bæði vínin kosta 2.149 kr. og fást í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Meira um Saint Cosme  »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Eldum íslenskt

Nýir matreiðsluþættir á sjónvarpsstöðinni ÍNN þar sem er matreitt úr íslenskum búvörum, bændur heimsóttir og góðar matur eldaður með tilheyrandi sýnikennslu.

Kjötsúpa, eggjakaka, nautasteik og hvaðeina. Allt mjög girnilegt og íslenskt.

Eldum Íslenskt er á Facebook

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.