Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 20. ágúst 2009

Sendur aðra hvora viku
til 986 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Nýr framleiðandi | Uppskrift dagsins | Beljan kemur heim

NÝR FRAMLEIÐANDI
Bisceglia — Lífræn vín frá S-Ítalíu

Í átakinu undanfarna mánuði að finna góð kaup um víðan völl beindist athygli okkar að S-Ítalíu. Við vissum að á S-Ítalíu væri oft að finna góð kaup og það hafði lengi staðið til að finna þar framleiðanda sem framleiddi vín á góðu verði.

Eftir tilheyrandi vangaveltur voru okkur send sýnishorn (við viðurkennum að þetta er ekki leiðinlegasti þáttur vínstarfsins) frá tveimur nýstofnuðum víngerðum á svæðinu.

Önnur með þekkta víngerðarfjölskyldu á bak við sig þar sem mikið var lagt í útlit miða og markaðssetningu, vínin miklar bombur, nammikennd og ýkt á köflum og ekki alveg eins ódýr og við hefðum viljað (maður borgar fyrir pakkningar). Flott nafn sem allur heimurinn gæti borið fram.

Hin var stofnuð af verslunarmanni í héraðinu sem framleiddi eingöngu vín úr lífrænt ræktuðum þrúgum með nokkuð lágu áfengismagni og þægilegum jarðkenndum blæ sem gerði þau heilsteyptari og tengdari uppruna sínum. Verðin góð en engir svona glansandi "keyptu mig!" límmiðar fyrir utan að nafnið var frekar furðulegt og óþjált.

Hvað völdum við?

Nr. 2.

Ekki spurning.

Maðurinn á bak við vínin er Bisceglia (borið fram "Bisjelía") og við þurftum eiginlega ekki að vita hver hann var eða hvaðan hann kom, vínin sögðu alla þá sögu sem segja þurfti (áhugasamir um ættfræði geta keypt þessa bók á Amazon).

En pistillinn er orðinn svo langur að við látum nægja að benda á að vínin þrjú frá Bisceglia koma öll frá sitt hvoru héraðinu á S-Ítalíu. Hvítvínið Falanghina (2.120 kr.) kemur frá Campania héraði, rauðvínið Primitivo frá Puglia (2.189 kr.) og rauðvínið Aglianico del Vulture (2.189 kr.) frá heimahéraði framleiðandans, Basilicata.

Fást öll í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Vefsíða framleiðandans Bisceglia »

UPPSKRIFT DAGSINS
Síðusteik á sunnudegi — Korngrís frá Laxárdal

Frá því hún opnaði fyrir tveimur vikum eða svo hefur Frú Lauga boðið upp á svínakjöt frá Laxárdal.

Svínin á bænum eru fóðruð á byggi sem bændurnir rækta sjálfir.

Hollt og íslenskt.

Við rifjuðum á dögunum upp einn af mikilvægustu máttarstólpum íslenskrar matarhefðar:

Sunnudagssteikina!

Vakna mátulega snemma, fara í sund eða labbitúr. Elda í rólegheitum, ef til vill hlusta á messu í útvarpinu. Öllu stressi vísað á dyr. Borða með vinum og fjölskyldu góðan hádegismat og spjalla frameftir degi.

Mas de Gourgonnier hvítvínið lífræna frá Frakklandi smellpassaði með.

Uppskriftin af Síðusteik frá Laxardál »

BELJUFRÉTTIR
Ævintýrum Beljunnar á Ítalíu lokið — í bili

Hún er komin heim þessi elska.

Beljan.

Frá því í vor höfum við háð baráttu við stéttarfélög ítalskra prentara og yfirvald Áfengis- og Tóbaksverslunar Ríkisins um að fá að hanna kassavín eins og við vildum hafa það.

Á meðan naut Beljan sjálf lífsins í dekstruðu yfirlæti hjá hjónunum Alessandro og Antoniettu í eikarkastalnum Castello di Querceto.

Nú er hún komin heim með fulla spena af rauðu og hvítu og mun taka á móti gestum í Vínbúðunum frá og með 1. september.

Vinir beljunnar geta spjallað við hana á Facebook »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Vín vikunnar

Á hverjum föstudegi kl. 16.00 ætlum við að poppa upp flösku af góðu víni í Frú Laugu.

Við bjóðum áskrifendur Vínpóstsins sérstaklega velkomna í heimsókn að smakka vín vikunnar.

Næsta föstudag ætlum við að opna eitt vínið frá Bisceglia, rauðvínið Aglianico del Vulture.

Ókeypis sætaferðir verða frá Frú Laugu í Vínbúðirnar á hálftíma fresti á meðan á vínsmökkun stendur.

Nei, það er reyndar lygi.

Meira um Aglianico del Vulture »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Ísbúðinni Laugalæk

Ísbúðin Laugalæk endurfæddist í sumar.

Björt og falleg ísbúð með bekkjum fyrir utan til að tylla sér á góðvirðisdögum.

Frú Lauga er ánægð með að eiga svona góðan nágranna.

Ísbúðin Laugalæk er á Facebook

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.