Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 10. desember 2009

Sendur aðra hvora viku
til 1060 tryggra áskrifenda

Í Þessum Vínpósti: Hátíðarvínlisti | Grallari mánaðarins

HÁTÍÐARVÍNLISTI ÍSLANDS 2009
Vínin með hátíðarmatnum

Hann er kominn út — listinn sem allir hafa beðið eftir.

Hátíðarvínlisti Íslands 2009

Varist eftirlíkingar.

Valin vín með hátíðarmatnum eins og hangikjöti, nautakjöti, humri, forréttum og svo mætti lengi telja.

Prentið út og takið með í Vínbúðirnar til að auðvelda ykkur valið eða kíkið í Frú Laugu frá og með morgundeginum til að sækja eintak.

Í Frú Laugu væri jafnvel hægt að kippa í leiðinni einhverju lystugu í jólamatinn, t.d:

Nautakjöt af uxa frá Árbæa, holdanaut frá Miðey, lambakjöt frá Auðsholti II, hangikjöt frá Fjallalambi, Auðsholti II og Möðrudal; alikálf eða folald frá Lágafelli, bleikjur frá Hala í Suðursveit og úr Þingvallavatni, reyktar bleikjur frá Skútustöðum, bláskel úr Hrísey, endur frá Hlíðarbergi, villtar gæsir, heitreyktar gæsir og endur, grafnar gæsabringur, makrílpaté að ógleymdum ís, grænmeti, sultum og síðan súkkulaðinu frá Amedei.

Hátíðarvínlisti Íslands 2009 »

GRALLARI MÁNAÐARINS
Lini Labrusca Lambrusco — hvað eru mörg "L" í þvíð

Inn og út um gluggann.

Sjálfvirka vínvalsvélmennið í ÁTVR hefur kastað út úr húsi tveimur góðum vínum frá Lini fjölskyldunni fyrir þær sakir einar að hafa ekki selst nægilega mikið.

Við höldum okkar striki og sendum nýja meðlimi fjölskyldunnar í heimsókn.

Italian style.

Í þetta sinn eru það grallararnir þrír, Rosato, Bianco og Scuro.

Freyðandi fjörkálfar eins og systkyni þeirra úr Lini Lambrusco fjölskyldunni.

Skyldueign yfir hátíðirnar.

Labrusca Lambrusco Scuro er stórbrotið með hangikjöti, Labrusca Lambrusco Rosato elskar hamborgarhrygg og Labrusca Lambrusco Bianco bara elskar að vera til.

Verð 2.190 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi (Rosato og Bianco fást líka í Borgartúni).

Lini Labrusca Lambrusco — fær mann til að syngja lag eins og þetta

Lestu meira um Lini »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Nýtt á sérlista

Samtökin góðu Slow food eiga 20 ára afmæli og til að halda upp á áfangann er blásið til Terra madre dags í dag um allan heim.

Frú Lauga tekur þátt með því að fá heimsókn frá góðum aðilum í dag; Frosti bakari kemur með smakk frá Sólheimum í Grímsnes og fræðir áhugasama um starfssemina og trillurkarlarnir Unnsteinn og Ómar mæta með makrílinn sinn.

Sitthvað fleira verður í smakk eins og súkkulaði, hanigkjöt, ostar og svolítil lögg úr Beljunni til að skola niður.

Meira um Slow Food  »

Lengi er von á einni

Beljan: 3 lítrar af ítölsku gæðavíni. Eina kassavínið með Möbelfakta! Fæst bara í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Vefur Beljunnar

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.