Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Vefur Víns og matar

Vínpósturinn

fimmtudaginn 16. desember 2010

Sendur annað slagið, til
1172 tryggra áskrifenda

Vín sem taka sig hátíðlega

Hér er voða fín mynd

Valpolicella Ripasso er hátíðlegt rauðvín

HÁTÍÐLEG VÍN

Jól etc.

Já, það er virkilega sá tími ársins.

Það þýðir bara eitt:

Hátíðarvínlisti Íslands 2010

Við tínum til helstu hátíðarrétti og mælum með vínum sem við myndum vilja drekka.

Ekkert stress, enginn valkvíði. Þú þarft bara að prenta út listann áður en haldið er af stað í Vínbúðirnar.

Þar sem við erum svo lítil fást flest hátíðarvínin okkar eingöngu í Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Gleðileg jól og takk fyrir árið sem er senn að líða!

Arnar og Rakel

ÖNNUR VÍN

Betumbætt Belja og Beaujolais

Þróunardeildin vill láta vita að við höfum látið endurbæta hvítu Beljuna frá og með nýjustu sendingu eftir að sú eldri var farin að sína þreytumerki.

Hvíta Beljan er því nú mun ferskari og betri þótt árgangur sé hinn sami (2008).

Rauða Beljan (5.890 kr.) er aftur á móti óbreytt fyrir utan að í næstu viku byrja fyrstu Beljurnar af 2009 árgangi að skila sér í Vínbúðirnar.

En að nýjum vínum:

Við höfum flutt inn tvö rauðvín frá Beaujolais í fyrsta skipti sem eru nú fáanleg í Vínbúðunum. Hér er ekkert "nouveau" á ferðinni heldur svokölluð "cru" þorpsvín sem eru heldur merkileg með sig.

Þau heita Morgon Biovitis (3.490 kr.) og Brouilly (2.980 kr.) og er hið fyrrnefnda lífrænt vottað.

Hér er afskaplega fín mynd

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Fínerí á Fésbók

Fésbókin

Vín og matur er auðvitað á Facebook eins og allir hinir. Viltu vera memm?

Allt um okkur

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um okkur en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Frú Lauga

Tíminn

Vilt þú vita hvað þú borðar? Kauptu inn hjá frúnni. Allt um frúnna

Vín & matur · Laugalæk 6 · Sími 693 7165