Svolítill hvítvínsbolti á góðu verði
|
MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ
Belgi í Frakklandi
Domaine Combe Blanche er nýr framleiðandi í okkar sveit.
Stjórnað af Belganum Guy Vanlacker sem hætti að kenna og elti draum til Languedoc héraðs í S-Frakklandi. Þar framleiðir hann persónuleg og fáguð vín á mjög sanngjörnum verðum.
Hvítvínið Calamiac Terroir 2007 er gott dæmi.
Framleitt úr þrúgunum Roussanne og Viognier sem gefa því þykkt og kraft í bland við léttleika og blómlega angan. Góð fylling í munni og langt eftirbragð.
Það sem við myndum kalla, mikið fyrir lítið.
Frábært með grilluðu fiskmeti og kjúklingi eða ýmis konar austurlenskri matseld.
Fæst í Vínbúðum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi á aðeins 2.390 kr.
Ps. hægt verður að smakka litla hvítvínsboltann í Frú Laugu á föstudaginn kl. 16.00.
|