Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 12. mars 2009

Sendur aðra hvora viku
til 882 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Tilkynningaskyldan | Vínbúðarfréttir | Uppskrift dagsins | Vínkeðjan | Vín og matur

TILKYNNINGASKYLDAN
Ný sending frá Ítalíu

Nokkur vín sem kláruðust á lager hjá okkur um áramótin eru komin aftur í Vínbúðirnar. Það er kannski óþarfi að taka fram að fjandmaður okkar Gengis Khan hefur valdið því að þau hafa hækkað nokkuð í verði frá því áður en þannig er nú bara það.

Ný sending er komin af Lambrusco (1.980 kr.) frá Lini og freyðivíninu Moscato Spumante (1.860 kr.) frá sama framleiðanda sem þrátt fyrir allt (og með slatta af góðum vilja) ná að halda sig réttu megin við 2.000 kallinn.

Þess má líka geta að Lambrusco frá Lini fékk 91 stig af 100 í Morgunblaðinu (lestu fréttina) og getum við því feimnislaust flaggað því áfram sem góðum kaupum.

Með sama skipi komu tvö bretti frá Castello di Querceto í Toskana sem innihéldu nýjan árgang af gömlum standördum; rauðvínin Chianti Classico 2007 (2.490 kr.) og Chianti Classico Riserva 2005 (3.690 kr.), sætvínið Vin Santo 2005 (3.690 kr.) og jafnframt Chianti rauðvínið þeirra (1.790 kr.) sem kemur á markað 1. apríl í nýjum umbúðum og betra en nokkru sinni fyrr (fjallað nánar um það í næsta Vínpósti).

Að lokum má geta að "vínið sem hvarf" vegna tæknilegra örðugleika, hvítvínið austurríska Grüner Veltliner (1.875 kr.) frá Sandhofer, er komið aftur á lager Vínbúðanna.

Öll þessi vín fást í Heiðrúnu, Skipholti og Kringlunni fyrir utan Chianti Classico Riserva frá Castello di Querceto sem fæst á enn fleiri stöðum.

Alla framleiðendur okkar má skoða hér »

VÍNBÚÐARFRÉTTIR
Þriðji burinn er fæddur

Flest ný vín sem hefja sölu í Vínbúðunum eru kölluð reynsluvín og fást aðeins í tveimur verslunum til að byrja með, Kringlunni og Heiðrúnu. Þær tvær verslunir eru nákvæmlega eins, þær eru tvíburar. Í þeim báðum fást allar vörutegundir Vínbúðanna.

Nú er fæddur þríburi.

Vínbúðin í Skútuvogi hefur verið stækkuð í sömu stærð og Kringlan og Heiðrún sem eru góðar fréttir fyrir okkur því það þýðir að vínin okkar (sem flest eru reynsluvín) fást á fleiri stöðum en áður.

Megi hún vaxa og dafna.

Skoðaðu hvar allar Vínbúðir á landinu eru staðsettar »

UPPSKRIFT DAGSINS
Heimalagaðir hamborgarar

Hamborgarar eru líka matur.

Þeir þurfa ekkert að vera svo óhollir. Það má sleppa beikoni, nota lítið majónes í sósuna og setja fullt af grænmeti ofaná. Brauðið má líka baka heima úr hollu hráefni.

Þessi heimalagaða hamborgarauppskrift er kannski enginn hollusturéttur (bloggarinn missti sig aðeins í majónesinu) en á samt ekki skilið að vera fordæmdur sem heilsuhrellandi skyndibiti.

Þetta hófst allt saman einn góðan veðurdag þegar bloggarinn vaknaði af værum dagdraumi við garnagaul og hélt af stað út í Nóatún til að kaupa ungnautahakk og brauð í heimalagaða hamborgara. Annað hráefni var síðan fundið í ísskáp heimilisins og uppskriftin spunnin í framhaldinu.

Uppskriftin af heimalöguðu hamborgurunum »

VÍNKEÐJAN
Sigurður Elvar bloggar um nýjan árgang af Chianti Classico frá Castello di Querceto

Sigurður Elvar líkir Chianti Classico frá Castelli di Querceto við sportbíl í æsispennandi bloggfærslu um kynni hans af víninu.

Lestu hvað Sigurður segir um vínið

Hann viðurkennir reyndar að vera með "lyktarskynið eins og íslenska bankakerfið" en kemst engu að síður að þeirri niðurstöðu að vínið sé gott á bragðið.

Hann skorar á Eirík Ásgeirsson sem hefur tekið áskoruninni og bíður eftir að fá sama vín í hendur

Allt um Vínkeðjuna »

VÍN OG MATUR
Vín með lambakjöti og svínakjöti

Við erum að vinna í því að fjalla reglulega um það á blogginu okkar hvers konar vín henta best með ákveðnum tegundum af mat.

Við byrjuðum á því að fjalla um vín með lambakjöti og tókum síðan fyrir vín með svínakjöti.

Grænmetisætur þurfa því að bíða aðeins eftir að við komumst í gegnum kjötpakkann.

Niðurstaðan okkar er sú að lambakjöt eldum við yfirleitt sem einfaldast og veljum vínin eftir því, t.d. ítalskt Chianti Classico, en svínakjötið fær frekar marineringar, barbeque og því um líkt og veljum við frekar ástralskt Shiraz til að njóta með því.

Svo má líka bara sleppa þessu og fá sér bjór.

Skoðaðu matartengdar fréttir á blogginu »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Vínframleiðandi vikunnar

Við leyfum okkur að vera aðeins á undan áætlun með að kynna nýjasta framleiðandann í okkar herbúðum, Chateau de Montfaucon, því vínin frá honum hefja ekki sölu fyrr en 1. apríl.

Við heimsóttum hann síðasta haust (á degi bankahruns takk fyrir) eftir að hafa fengið áður send sýnishorn sem vöktu mikinn áhuga okkar.

Heimsóknin stóð undir væntingum, vínin voru frábær og við vorum heilluð af stefnu og heilindum framleiðandans sem leggur mikinn metnað í að framleiða vín sem hann getur stoltur kallað Rónarvín.

Vínin tvö sem muna koma til með að fást 1. apríl í Vínbúðunum er einmitt kennd við ánna Rón (og samnefnt hérað í Frakklandi) því Montfaucon kastalinn er bókstaflega á vestarbakka árinnar þar sem hann gegndi áður mikilvægu, hernaðarlegu hlutverki.

Côtes du Rhône (2.190 kr.) er heillandi og matarvænt rauðvín sem ætti að fara vel í breiðan smekk og sömu sögu má segja af hvítvíninu Comtesse Madeleine (2.890 kr.) sem er einfaldlega magnað.

Meira um Chateau de Montfaucon »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Búrinu - nýrri ostabúð í Nótatúni

Ný ostabúð, Búrið, opnaði ekki alls fyrir löngu í Nóatúni. Mikil fagmennska einkennir starfssemina og ostaþekking Eirnýjar er mikil frá því hún bjó á Bretlandi.

Þarna er að finna ýmis konar mis-þefandi osta — eða eins og segir á vefsíðu þeirra "Búrið er ný ostaverslun í Reykjavík sem býður upp á besta óþefinn í bænum"

Kíktu á Búrið í Nóatúni

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Vínpósturinn er handsaumaður af Takk Takk í nýtízku vélum.

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.