Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 2. apríl 2009

Sendur aðra hvora viku
til 888 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Bestu kaupin | Sérpöntun | Uppskrift dagsins | Vínkeðjan | Úr fundarherberginu

BESTU KAUPIN
Querceto Chianti 2007 með páskalambinu — BESTU KAUPIN í Gestgjafanum

Gestgjafinn fjallar vel um litla Chianti rauðvínið frá Castello di Querceto í nýjasta tölublaðinu. Á fjórum stöðum víðs vegar í blaðinu er mælt með víninu; með uppskrift af lambaskönkum, með lambalæri, sem hentugu alhliða rauðvíni í útskriftarveislur og síðast en ekki síst hlýtur það hinn mánaðarlega titil "Bestu kaupin" og 4 glös af fimm mögulegum.

Það er ágætis meðbyr því vínið hóf formlega sölu í Vínbúðunum í gær.

Chianti frá Querceto hefur fengist í Vínbúðunum áður en eftir nokkur hlé kemur nýr árgangur með nýjum miða. Það er einfaldlega betra en gamli árgangurinn og jafnframt aðgengilegra. Við erum líka sammála Gestgjafanum um að vínið sé "alhliða" og til almenns brúks.

Og þrátt fyrir allt er Chianti frá Querceto bara alls ekki svo dýrt, 1.790 kr.

Ein með öllu.

Við höfum oft áður bent á hversu vel rauðvín frá Chianti svæðinu í Toskana á Ítalíu falli með lambakjöti. Það er ærin ástæða til að minna á það nú þegar páskarnir eru framundan og lambakjöt svo víða á hátíðarmatseðlinum.

Það er rétt að minna á að lokum að Chianti frá Querceto fæst til að byrja með eingöngu í Heiðrúnu, Kringlunni og Skipholti.

Líði ykkur sem best yfir hátíðirnar og gleðilega páska!

Lestu um framleiðandann Castello di Querceto »

SÉRPÖNTUN
Búrgúnd 2006 frá Lucien Le Moine (ekki aprílgabb)

Fyrir rúmu ári síðan greiddum við að fullu fyrir pöntun af 2006 Búrgúndarvínum frá Lucien Le Moine.

Framleiðandinn sem er svo lítill að eiginlega er hann bara sjoppa er nefnilega sá eini sem við flytjum inn sem gerir kröfu um fyrirframgreiðslu, 6 mánuði fyrir afhendingu eða svo.

Okkur finnst alltaf fúlt að borga langt fram í tímann en gerum undantekningu þegar eftirsóttur framleiðandi eins og Lucien Le Moine er á ferðinni.

Að þessu sinni kom fyrirframgreiðslan sér sérstaklega vel því þegar við greiddum fyrir vínið kostaði evran "aðeins" 100 kall eða svo.

Verðin á 2006 vínunum frá Lucien Le Moine eru því hagstæð eftir því, þótt þau kosti skildinginn.

Ódýrustu vínin úr sendingunni eru tvö, rauðvínið Bourgogne Rouge 2006 og hvítvínið Bourgogne Blanc 2006. Á 3.290 kr. stykkið teljast þau tiltölulega hagstæð leið til að gægjast inn í þann töfraheim sem Búrgúndarvínin eru.

ATH! Það er svo lítið til af þessum vínum að þetta er næstum því aprílgabb.

Sendu sérpöntun á solumenn@vinbudin.is til að panta Bourgogne Rouge 2006 og/eða Bourgogne Blanc 2006 frá Lucien Le Moine.

Lokaorð:

Sökum ástæðna í þjóðfélaginu og krónutuðrunnar höfum við ákveðið að flytja ekki inn næsta árgang, 2007, frá Lucien Le Moine. Það verður því einhver bið á nýjum gæðingum frá Búrgúnd á næstunni.

Við eigum hins vegar ennþá stakar flöskur hér og þar af 1er og Grand Cru 2006 vínum frá Lucien Le Moine á gamla genginu, fyrir utan þessi tvö sem fjallað er um hér fyrir ofan. Sendu okkur línu ef þú vilt fá yfirlit yfir hvað er ennþá til.

Pantaðu Bourgogne Rouge og Bourgogne Blanc í Vínbúðunum »

UPPSKRIFT DAGSINS
Bara salat fyrir mig takk

Hér á þessum bæ er talsvert fengist við salatsmíðar. Yfirleitt tilfallandi grænblöðungar, hnetur og því um líkt og ekki má gleyma ediki, ólífuolíu, salti og pipar.

Ef það væri til eitthvað salat hússins væri uppskriftin of sveigjanleg til að hafa hér eftir í þessu fréttabréfi.

Stundum eru brettar upp ermar og frankvæmdur gjörningur sem mætti kalla formlega salat-uppskrift eins og t.d. tómata-, mozzarella- og basílíkusalatið hennar Rakelar.

Það er ofboðslega gott svo maður gleymir stundum stöðugildi salatsins sem óbreytts "meðlætis" og fer að háma það í sig eins og ekkert annað væri á matseðlinum.

Uppskriftin af tómata-, mozzarella- og basílikusalati »

VÍNKEÐJAN
Eiríkur Ásgeirsson fær í hendur góðvin sinn Hubert Sandhofer

Eiríkur Ásgeirsson bað um hvítt þegar við spurðum hann hvorn litinn hann vildi fá til að blogga um í næsta hlekk Vínkeðjunnar.

Flestir bloggararnir hafa kosið rauðvín undanfarið.

Þar sem við erum aðeins að rótera með vínkeðjuvín þessa dagana völdum við hvítvín sem ekki hafði verið hluti af keðjunni áður, Grüner Veltliner frá Hubert Sandhofer.

Það vildi svo skemmtilega til að Eiríkur bloggari þekkti ekki bara til austurrískra vína heldur taldi Hubert sjálfan til góðvina sinna, svo ekki fór vínið í slæmar hendur þar enda umsögn góð eftir því.

Lestu hvað Eiríkur segir um Grüner Veltliner

Vorum annars að hugsa um að setja Lambrusco frá Lini í næstu hlekki vínkeðjunnar, svona til að minna fólk á að gott Lambrusco er sko ekkert frat.

Allt um Vínkeðjuna »

ÚR FUNDARHERBERGINU
Nýr miði á flöskurnar í Vínbúðunum

Allar rúllur með síðasta skammti af "Vín og matur" límmiðum kláruðust í vikunni svo það eru einhverjar vínflöskur frá okkur ómerktar í hillum Vínbúðanna þessa stundina.

Nýr miði er hins vegar farinn í prentun og mun hann fara að birtast á flöskunum jafnt og þétt með hækkandi sól.

Hann er jafn stór og fyrri límmiðar og með sömu litum en vísar nú veginn inn á vefinn okkar með puttanum góða og textanum "Um vínið á vinogmatur.is".

Svo það fari ekkert á milli mála.

Okkur þykir svolítið vænt um þennan trausta og ráðagóða putta. Við höfum notað hann áður í minni háttar bréfsefni. Hann sprettur úr sama farvegi og dýramyndirnar sem við notuðum einu sinni á miðana, klassískur og gamaldags.

Það finnst okkur.

Allar skoðanir vel þegnar á facebook »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Vínframleiðandi vikunnar

Við rifjum upp Vínframleiðanda vikunnar úr síðasta fréttabréfi Chateau de Montfaucon því vínin tvö frá honum komu loks í hillur Vínbúðanna núna í vikunni.

Côtes du Rhône (2.190 kr.) er heillandi og matarvænt rauðvín sem ætti að fara vel í breiðan smekk og sömu sögu má segja af hvítvíninu Comtesse Madeleine (2.890 kr.) sem er einfaldlega magnað, þykkt og glæsilegt.

Í næsta Vínpósti verður fjallað nánar um Côtes du Rhône rauðvínið.

Meira um Chateau de Montfaucon »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Takktakk

Hann Valgeir vinur okkar og ritstjóri og heimsborgari með meiru hefur hjálpað okkur í gegnum árin með ýmis mál sem viðkemur rafrænni hlið fyrirtæksins; vefsíðu, facebook, þennan póst sem þú ert að lesa og sitt hvað fleira.

Það má segja að hann hafi verið ómissandi.

Ef maður telur sig hafa góða hugmynd skiptir miklu máli að koma henni í réttan farveg.

Fyrirtæki Valgeirs Takk Takk hjálpar fyrirtækjum "að nota netið til að stækka, spara og eignasta vini."

Takk fyrir það. Takk.

Meira á Takk Takk

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Vínpósturinn er handsaumaður af Takk Takk í nýtízku vélum.

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.