Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 17. september 2009

Sendur aðra hvora viku
til 1022 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Nýtt kassavín | Uppskrift dagsins | Fréttir utan úr heimi | Dómar

NÝTT KASSAVÍN
Rauð Belja og hvít

Beljan er komin í Vínbúðirnar.

Okkar fyrsta kassavín.

Það liggur aðeins meiri vinna á bak við blessaða Beljuna heldur en öll önnur vín sem við höfum áður flutt inn.

Hér má lesa nánar um fæðingu og ferðalag Beljunnar

Hönnun og texti umbúða er íslenskur en vínið á spenunum kemur alla leið frá Castello di Querceto í Toskana á Ítalíu þaðan sem við höfum flutt inn ýmis góð vín undanfarin ár.

Beljan kemur í tveimur litum:

Rauðvín Toscana Rosso (6.298 kr. 3L) og Hvítvín Toscana Bianco (5.998kr. 3L) fást í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Við völdum þessi vín af því að okkur finnst þau góð.

Segðu okkur hvað þér finnst um Beljuna á Facebook.

Muuu!

Beljan er með eigin vefsíðu»

UPPSKRIFT DAGSINS
Rauðrófurísottó með villtum lerkisveppum

Rauðrófur eru frábært hráefni; bragðmiklar, hollar og ekki spillir fyrir þessi fallegi blóðrauði litur.

Upplagðar í kjötsúpur og ýmsa pottrétti, eða skornar í teninga og steiktar á pönnu eða bakaðar í ofni.

Á Facebook síðu Frú Laugu (undir "just fans") barst líka þessi girnilega uppskrift af niðursoðnum rauðrófum að dönskum hætti frá Helgu Margréti Gunnarsdóttur.

En við ætluðum að fjalla um rísottó sem bloggarinn hrærði á dögunum úr þeim rauðu ásamt fenneli og villtum lerkisveppum, allt saman hráefni úr forðabúri Móður jarðar í Vallanesi á Austurlandi.

Uppskriftin af Rauðrófurísottó með villtum lerkisveppum »

FRÉTTIR UTAN ÚR HEIMI
Hlæjandi skjór í japanskri teiknimyndaseríu

Rauðvínið sem getur ekki hætt að hlæja, The Laughing Magpie frá d'Arenberg, komst heldur betur í heimspressuna á dögunum.

Þetta margverðlaunaða hláturgas datt inn á síður japönsku manga teiknimyndaseríunnar "Dreggjar Guðanna" sem fjallar um dularfulla leit ungs vínsmakkara, Shizuku, að 12 guðdómlegum vínum veraldar.

Á vegi vínglöðu söguhetjunnar verða ýmis vín og hafa þau flest verið frönsk hingað til. Nú í fyrsta sinn var ástralskt vín til umfjöllunar og ekkert neitt hvaða ástralska vín sem er.

The Laughing Magpie 2006 kláraðist úr hillum japanskra vínbúða og hjá framleiðandanum eftir jákvæða umsögn Shizuku en í okkar herbúðum er nóg til af 2006.

Góðar fréttir!

Vínið var að færast í sérflokk Vínbúðanna og þar með er tryggt að 2006 árgangur verður þar fáanlegur á næstunni á gömlu verði, 2.890 kr.

Skoðaðu myndbrotið úr Dreggjum Guðanna »

DÓMAR
Við á síðum Vínóteks

Einn góðan veðurdag héldum við af stað upp í sveit og afhentum Vínótekinu bland í poka af nokkrum nýjum vínum.

Undanfarið hefur Vínótekið verið duglegt að smakka sig í gegnum sýnishornin og birt jafnóðum dóma á vefnum.

Af umræddum vínum virðist ítalska rauðvínið Aglianico del Vulture frá Bisceglia stinga nefinu eilítið á undan hinum.

Lestu hvaða vín fá hvaða dóma í Vínótekinu

Þarna á meðal má nefna ný vín frá d'Arenberg og fyrrnefndum Bisceglia ásamt Little James vínunum s-frönsku.

Allir dómar á blogginu»

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Föstudagsmakkið í Laugu

Til að fagna komu bláskeljarinnar frá Hrísey í Frú Laugu er við hæfi að velja í föstudagssmakkið gott hvítvín sem fer vel með skelinni bláu.

Í nýjasta Gestgjafanum er portúgalska hvítvínið Terra Antiga Vinho Verde valið "Bestu kaupin" ásamt því sem tímaritið mælir með víninu með skelfisk.

Það er því engin spurning.

Föstudagsvínið næsta föstudag verður Terra Antiga Vinho Verde. Það fæst í öllum Vínbúðum borgarinnar á 1.789 kr.

Föstudagssmakkið í Frú Laugu er á milli 16.00 og 18.00.

Meira um Terra Antiga »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Bláskel úr Hrísey

Ef það hefur farið framhjá einhverjum þá barst Frú Laugu bláskel úr Hrísey í fyrsta sinn fyrir síðustu helgi.

Ný sending dettur í hús á morgun.

Brakandi ferskt og gott hráefni á fínu verði, 1.190 kr. kílóíð.

Hollt og gott.

Fallegt og eitthvað svo íslenskt.

Við mælum með því.

Bláskelin úr Hrísey

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.