Pecorino er nýtt hvítvín frá Umani Ronchi — fyrir menn og rollur
Við höldum áfram að kynna ný vín frá Ítalíu.
Það er ástæða til að taka fram áður en lengra er haldið að vínið sem við fjöllum um núna, eins og flest önnur ný vín, fæst aðeins í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni og það er því til lítils að renna í aðrar Vínbúðir og krefjast þess að fá það keypt.
Að þessu sinni fjöllum við um nýtt hvítvín frá framleiðandanum Umani Ronchi, Pecorino, en eins og margir vita framleiðir hann einnig hvítvínið Casal di Serra, sem er líklegast vinsælasta vínið okkar frá upphafi.
Það er áhugavert að bera saman þessi tvö hvítvín því þau eru all ólík. Casal di Serra úr Verdicchio þrúgunni er nokkuð feitt með suðrænum ávaxtatónum og hefur gylltan lit en Pecorino úr samnefndri þrúgu er piprað, steinefnaríkt með bjartari ávexti og nánast glært að lit. Gæðalega eru þau svipuð, þetta er spurning stíl.
Mmmmmeeeeeeeeeeeeee ...
Nafn Pecorino þrúgunnar er dregið af sauðkindinni ítölsku (pecora) en sagan segir að þrúgan sé í uppáhaldi hjá kindum. Við ábyrgjumst þó ekki hvað gæti gerst ef þú reyndir að gefa rollunni þinni þetta vín. Margir kannast líka eflaust við frægan, ítalskan ost með sama nafni, pecorino.
Smelltu hér til að lesa meira um Pecorino þrúguna
Pecorino er fyrsta hvítvínið sem við flytjum inn frá hinu suðlæga Abruzzo héraði en Umani Ronchi víngerðin á vínekrur bæði í Abruzzo og í heimahéraðinu Le Marche.
Pecorino 2007 kostar 1.980 kr. og fæst eingöngu í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni og á veitingastaðnum La Primavera.
Með Pecorino mælum við með léttum réttum, pasta, skelfiski og þess háttar eða góðum salötum eins og eplasalati með parmaskinu.
Kíktu á nýja vefsíðu hjá framleiðandanum Umani Ronchi »
Vínkeðjan: Valinkunnur andans maður og húskerlingin Una smakka Anima Umbra
Vínkeðjan skoppar áfram og lendir að þessu sinni hjá bloggaranum og andans manninum Önundi.
Honum til aðstoðar við smakkið var húskerlingin Una.
Lestu hvað þeim finnst um Anima Umbra
Óttar Völundarson tekur við keðjunni og hefur fengið í hendur eintak af sama víni, Anima Umbra.
Hann mun blogga um það á næstunni. Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá.
Til að rifja aðeins upp reglurnar þá virkar vínkeðjan þannig að við látum bloggara fá vín sem hann bloggar um með sínu nefi án nokkurra afskipta frá okkur — og tilnefnir í leiðinni næsta bloggara til að halda áfram með keðjuna.
Lestu allt um vínkeðjuna »