Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

þriðjudaginn 19. ágúst 2008

Sendur aðra hvora viku
til 675 tryggra áskrifenda

Í þessum auka-Vínpósti: Vín með íslenskri myndlist á Vínbarnum í dag kl. 17.00

Extra, extra! — Vínkynningin á Vínbarnum er í dag

Hubert Sandhofer er mættur til landsins og getur ekki beðið eftir því að leyfa þér og öllum hinum að smakka vínin sín á Vínbarnum í dag kl. 17.00.

Vonandi hefur það ekki farið framhjá neinum að um er að ræða þrjú vín með myndlist eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur sem við, Hubert, Kristín og nokkrir góðir aðilar völdum í sameiningu snemma á vor-dögum.

Þar sem smökkunin á eftir er kynning en ekki námsskeið er ekki nauðsynlegt að koma á slaginu 17.00 heldur er hægt að detta inn hvenær sem er á milli 17.00 og 19.00 til að kynnast vínunum nánar.

Sem fyrr eru vínin þrjú: hvítvínið Grüner Veltliner 2007, rósavínið Rosando 2006 og rauðvínið St. Laurent Reserve 2006.

"Land der Berge, Land am Strome"hér má hlusta á þjóðsöng Austurríkis til að koma sér í stemninguna.

Og ef þú ert ekki búinn að sjá og hlusta á Hubert sjálfan lýsa verkefninu og víngerðinni má gera það hér.

Vínbarinn er á Kirkjutorgi 4, við hliðina á Dómkirkjunni. Við hlökkum til að sjá þig og endilega kipptu einhverjum með.

Fréttina má líka finna á blogginu »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum veistu að hún hefur verið valin af vandvirkni og ástríðu okkar sem flytjum hana inn frá framleiðendum sem skipta máli.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.