Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 9. október 2008

Sendur aðra hvora viku
til 690 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Útsala, útsala og í fyrsta sinn hægt að panta vín á netinu

Útsala, útsala!

Rauðvínsútsalan okkar í fyrra fór langt fram úr væntingum. Við vorum í skýjunum með viðtökurnar en leiddist svolítið að allir fengu ekki það sem þeir vildu því sum vín seldust hratt upp.

Rauðvínin eru 8 að þessu sinni, frá fjórum ólíkum löndum.

Álagningin okkar fær að fjúka. Öll verðin eru miðuð við gömul innkaupsverð og útsalan því ennþá hagstæðari fyrir vikið.

Falesco Vitiano (Ítalía) - 1.400 kr. í stað 1.690 kr.
d'Arenberg The Stump Jump (Ástralía) - 1.350 í stað 1.590 kr.
Chateau de Flaugergues (Frakkland) - 1.500 kr. í stað 1.790 kr.
Oncle Charles (Frakkland) - 1.100 kr. í stað 1.350 kr.
Firriato Altavilla (Ítalía) - 1.450 kr. í stað 1.690 kr.
Gotim Bru (Spánn) - 1.450 kr. í stað 1.690 kr.
Lou Maset (Frakklandi) - 1.300 kr. í stað 1.600 kr.
Orobio Rioja (Spánn) - 1.350 kr. í stað 1.600 kr.

Lágmarkspöntun er sem fyrr 12 flöskur sem þú getur valið og blandað saman að vild.

Ef þú pantar heilan kassa (12 fl.) eða meira af einu og sama víninu færðu 5% aukaafslátt af útsöluverði þess.

Smelltu hér til að panta útsöluvín »

Í fyrsta sinn hægt að panta vín á netinu

Nú er hægt að kaupa vínin okkar á netinu.

Eftir því sem við best vitum er þetta í fyrsta sinn á Íslandi sem hægt er að panta vín með þessum hætti og verður framhald á því.

Framvegis sérpantar þú vín hjá okkur með því að fara inn á ákveðna síðu á www.vinogmatur.is þar sem þú velur þér vín sem eru í boði hverju sinni.

Þú gefur upp nafn, netfang, kennitölu og síma og jafnframt í hvaða Vínbúð þú vilt sækja pöntunina. Síðan sendir þú pöntunina af stað með því einfaldlega að smella á "senda".

ÁTVR staðfestir síðan pöntunina með því að senda þér tölvupóst eða í gegnum síma.

Ferlið tekur u.þ.b. fimm virka daga — áður en þú veist af ert þú kominn með vínin sem þú pantaðir á netinu í fangið.

Við erum spennt yfir þessu nýja pöntunarkerfi. Við höfum verið að þróa hugmyndina í nokkra mánuði og á meðan hafa sérpantanir að mestu legið niðri. Ekki lengur; smakkpakkar og fleira góðgæti mun bjóðast aftur hér í Vínpóstinum og er það sjálf útsalan sem ríður á vaðið.

Fylgstu með hvað er að gerast á blogginu »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur, þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Útsalan er ekki leyndarmál

Okkur þætti vænt um að þú létir sem flesta vita af þessari útsölu sem kynnu að hafa áhuga á henni.

Ef þeir eru ekki áskrifendur að Vínpóstinum nú þegar gætir þú hrifið okkur upp úr skónum með því að hvetja þá í leiðinni til þess að skrá sig.

Hér má gerast áskrifandi að Vínpóstinum  »

Nokkur orð um útsöluvín

Öll vín sem við flytjum inn skipta máli, finnst okkur. Þau uppfylla þá kröfu að hafa eitthvað svolítið sérstakt fram að færa, helst skara fram úr. Við viljum getað fundið fyrir uppruna þess, landinu þaðan sem það kom.

Útsöluvínin uppfylla þessi skilyrði. Þau hafa fengist í Vínbúðunum en ekki komist áfram í kerfinu og því hætt í reynslusölu þar. Þegar það gerist verður að bíða í ár til að vínið fái aftur inngöngu í Vínbúðirnar.

Við erum með svo mörg vín sem við vitum að munu aldrei komast áfram í kerfi Vínbúðanna en látum það ekki stoppa okkur frá því að flytja þau inn. Ef valið miðaðist alltaf við að reyna að koma víni áfram í kerfinu værum við að gera allt aðra hluti.

Stundum bíðum við í ár til að koma víni aftur í sölu en ef það er svolítill lager eftir finnst okkur jákvætt að geta boðið hann til ykkar sem fylgjast með því sem við erum að gera, jafnvel þótt vínin séu á kostnaðarverði enda álagning okkar á hverju víni lág.

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.