Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 23. október 2008

Sendur aðra hvora viku
til 703 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Tilboð á La Primavera um helgina, útsalan slær í gegn, myndir úr heimsókn til Frakklands og nýr hlekkur í Vínkeðjunni

Tilboð á La Primavera um helgina

Í tilefni viku ítalskrar tungu hefur verið tekinn upp sérstakur 3ja rétta matseðill á veitingastaðinum La Primavera um helgina.

Matseðillinn er eftirfarandi:

- Antipasta að hætti La Primavera
- Hægeldaðir lambaskankar með kartöflustöppu, rauðvínssósu og gremolata
- Ljúffeng Tiramisu

Allt þetta á aðeins 4.980 krónur.

Tilboðið gildir um þessa helgi, föstudag til sunnudags.

Hringdu og pantaðu borð í síma 561 8555.

Smelltu til að lesa auglýsinguna frá La Primavera

La Primavera er í sérstök uppáhaldi hjá okkur eins og svo mörgum Íslendingum. Matur, vín og stemning í umhverfi sem er með því fallegasta í Reykjavík. Ekki spillir fyrir að staðurinn er fjölskyldufyrirtæki og hefur verið frá upphafi — Leifur stendur vaktina í eldhúsinu og Jónína frammi í sal.

Kíktu á vínin okkar sem fást á La Primavera »

Útsalan slær í gegn annað árið í röð

Það er að gerast aftur; útsöluvínin rjúka út.

Helmingur tegundanna er að verða uppseldur og lagerstaðan á hinum er orðin illþyrmilega lág.

Það er ennþá nóg til af The Stump Jump þar sem við áttum slatta af því á lager, þó nokkuð af ódýrasta víninu Oncle Charles en aðeins lítið af þeim frönsku Chateau de Flaugergues og Lou Maset. Vitiano er næstum uppselt, hin eru alveg uppseld.

Takk fyrir góð viðbrögð!

Endilega láttu áhugasama vita af útsölunni, hún er ekki búin fyrr en hún er búin.

Smelltu hér til að fara á útsöluna »

Myndir úr heimsókn til Frakklands

Við hjónin skruppum til Frakklands í september og með í för var eins árs gömul dóttir og upprennandi vínáhugamanneskja.

Það var fræðandi að fylgjast með uppskerunni sem var víðast í fullum gangi og brosa fram í hlýja haustsólina sem sýndi sínar bestu hliðar meðan á ferðinni stóð.

Við tókum lest til Montpellier í S-Frakklandi og keyrðum þaðan alla leið til Parísar með viðkomu hjá all nokkrum vínframleiðendum.

Myndir úr ferðinni eru komnar á flickr og viðvaningslegt myndskeið er í vinnslu.

Skoðaðu myndirnar úr Frakklandsferðinni »

Nýr hlekkur í Vínkeðjunni

Þetta segir bloggarinn Óttar Völundarson um rauðvínið Anima Umbra frá Arnaldo Caprai:

"Ég ákvað að prufa vínið undir þeim kringumstæðum sem ég drekk flest mín vín, í partýi."

Hann kemst hins vegar að því að vínsins sé best notið með góðu pasta heldur en í hefðbundnu partýstússi.

Lestu meira um hvað Óttari finnst um Anima Umbra

Þá er að skunda með eintak af Anima Umbra til næsta bloggara.

Allt um Vínkeðjuna hér »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum veistu að hún hefur verið valin af vandvirkni og ástríðu okkar sem flytjum hana inn frá framleiðendum sem skipta máli.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Vínframleiðandi vikunnar

Það er ekki furða að Chablis vín eru þekkt og vinsæl því þau eru líklegast einhver matarvænstu hvítvín sem finnast. Tvö slík frá Domaine Christian Moreau eru fáanleg í Vínbúðunum — kjörin þegar maður vill ekki bara hvítt heldur eitthvað verulega gott.

Meira um Domaine Christian Moreau »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Þegar kemur að því að smakka vín eru allir sérfræðingar.

Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.